fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Ég kem hingað upp svolítið á ská inn í þetta mál vegna þess mig langaði að ræða á yfirvegaðan hátt þá spurningu sem hv. þm. Björn Leví varpa hérna fram áðan, þ.e. hver ákvarði fjárveitingavald fagráðherranna. Mig langaði af því tilefni að rifja upp sögu þessa ágæta máls sem Alþingi samþykkti hér með yfirgnæfandi meiri hluta um greiðsluþátttöku sálfræðinga, að það félli undir greiðsluþátttöku ríkisins. Því var býsna snautlega svarað af hálfu fjármálaráðherra strax í kjölfarið, að Alþingi gæti svo sem ákveðið hitt og þetta en það væri fjárveitingavaldið sem réði för. Þannig að það kemur svolítið inn á þetta. Og mér finnst bara býsna áhugavert að við skulum vera hér að kvöldlagi á síðustu dögum ársins að velta því fyrir okkur hver ráði raunverulega því hvert peningarnir fara. Ég held að börnum og ungmennum sé kennt að það sé Alþingi. En það kemur annað á daginn þegar á reynir. (Forseti hringir.) Þetta er bara hin áhugaverðasta umræða. (Forseti hringir.) Mér finnst hún reyndar mun áhugaverðari en margt það sem hér hefur verið rætt samkvæmt dagskrá Alþingis, (Forseti hringir.) þannig megi hún bara halda áfram sem lengst.