152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:15]
Horfa

Halldóra Mogensen (P) (um fundarstjórn):

Forseti. Mér finnst það í raun og veru dálítið skrýtin staða þegar fjármálaráðherra hvetur okkur þingmenn til að kalla félagsmálaráðherra til til þess að svara fyrir sinn málaflokk í umræðu um fjárauka og svo mætir félagsmálaráðherra og við neyðumst til að taka samtalið við hann undir fundarstjórn forseta í staðinn fyrir að gera það undir dagskrárliðnum fjáraukalög. Hæstv. ráðherra setur sig ekki á mælendaskrá og sýnir ekki vilja til þess að taka þátt í þeirri umræðu. Hérna hafa komið upp þingmenn og borið fram spurningar til hæstv. ráðherra þannig að fundarstjórn er orðin að einhvers konar neyðar óundirbúnum fyrirspurnatíma, sem er skiljanlegt þegar ráðherra neitar að koma upp og tala við okkur. Þannig að ég hvet hæstv. ráðherra til að koma og gera grein fyrir sínum málaflokki, halda stutta ræðu um hvað hann hyggst gera til að tryggja að þessi hópur fólks sem er að senda okkur neyðarkall geti haldið hér jól, það er það sem við erum að biðja um, (Forseti hringir.) og gefa í leiðinni hv. þingmönnum færi á að fara í andsvör við ráðherra og fá svör við sínum spurningum.