152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:17]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég kom hingað upp í pontu áðan og lýsti því yfir að mér hugnaðist að greiða út styrk til þeirra sem búa við örorku og það var fróðlegt að hlusta á hv. þm. Björn Leví Gunnarsson lýsa því yfir að öryrkjar ættu þennan pening inni. Mér sýndist kannski þegar ég var að reyna að glöggva mig á þessum fjárauka að það ætti að færa þessa peninga eitthvert annað, svokölluð tilfærsla, til að nýta þá einhvers staðar annars staðar. En ef þessi hópur á þessa fjármuni inni ber þá Alþingi ekki skylda til að greiða þá út, er það ekki bara næsta mál að greiða þetta út?

Mér finnst skrýtið að ráðherra félagsmála, sem spurður hefur verið að því hvort hann styðji þessa tillögu, skuli tala mjög óljóst í málinu. Ég stend hér og styð þessa tillögu og ég hvet ráðherra til að gera það með okkur.