fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Sú staða er uppi, ekki í fyrsta sinn, að þegar á hæstv. fjármálaráðherra er herjað þá vísar hann ábyrgðinni annað. Þetta gerðist ítrekað á síðasta kjörtímabili þegar umræðan snerist um fjárframlag til heilbrigðismála og get ég um það vottað að hann gerði þetta ítrekað, að vísa í fagráðherra þegar var verið að ræða ýmiss konar kjaramál heilbrigðisstarfsfólks eða önnur framlög til heilbrigðismála. Engu að síður er hann sá sem á hér að sitja fyrir svörum þegar hann leggur fram frumvörp til fjárlaga eða fjáraukalaga og gerir það svo í dag, þegar um er að ræða þessa eingreiðslu til öryrkja, að vísa ábyrgðinni á þessu alfarið til hæstv. félagsmálaráðherra sem fer með málaflokk öryrkja. Vil ég því taka undir orð þeirra fjölmörgu sem hér hafa hvatt hæstv. ráðherra til að lýsa því yfir eindregið að hann muni styðja tillögu stjórnarandstöðunnar um þessa eingreiðslu til öryrkja. Ég held að það færi best á því ef hann gerði það hér.