152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:20]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (um fundarstjórn):

Virðulegur forseti. Ég verð að segja að ég klóra mér dálítið í kollinum yfir því hvernig starfsemi þingsins er. Enn og aftur, maður er náttúrlega nýr hérna, maður er að læra og maður er að skilja, en ég hélt að þetta snerist dálítið mikið um samtal. Ég hélt að þetta snerist um það að þegar hæstv. ráðherra er kallaður hingað í salinn til að koma þá geri hann meira heldur en að hlusta eða halda einhverjar yfirborðskenndar stuttar ræður. Hér er auðvitað tækifæri til þess að fara af svolitlum krafti inn í þessa umræðu, eiga í smáskoðanaskiptum við stjórnarandstöðuna og í raun og veru er það þannig að við ættum ekkert að þurfa að vera í miklum skoðanaskiptum um það hvort við ætlum að styrkja þann gjörning að koma þessari greiðslu sem við erum að ræða hér um til öryrkja fyrir jólin. Það á að vera svo sjálfsagt mál. En úr því að það er það ekki þá finnst mér að hæstv. ráðherra ætti að láta setja sig á mælendaskrá og tala aðeins við okkur í stjórnarandstöðunni um þetta mál. Við sjáum það bara á tölvupóstunum sem við erum að fá að það er full ástæða til að verða við bón þess fólks sem sendir okkur þá.