152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:23]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (um fundarstjórn):

Frú forseti. Mér þykir ekkert út úr myndinni að hér muni á lokametrum afgreiðslu þessa máls koma einhvers konar tillaga af hálfu meiri hlutans sem gengur í átt að því að laga hina slæmu stöðu þess fjölda fólks sem virðist hafa gleymst í plagginu eins og það lítur út núna. Kannski snýst þetta bara um þennan hefðbundna stíl, að það sé ekki hægt af hálfu meiri hlutans að samþykkja breytingartillögu sem kemur frá þingmönnum minni hlutans. Með öðrum orðum, að það sé formið en ekki efnið sem skipti hér máli, því miður. Enn og aftur.

Þá langar mig að segja þetta: Það eru níu dagar til jóla og það skiptir máli fyrir fólk sem veltir fyrir sér hverri krónu hvort það veit núna eða fær jafnvel hinar góðu fréttir seint í næstu viku hvort við þessu ákalli verður brugðist. Það er líka þáttur sem þarf að spila inn í, að við látum ekki þennan hóp einhvern veginn verða óviljugir þátttakendur í einhverri leikjafræði milli meiri hluta og minni hluta hér á þingi. Þau eiga allt annað og betra skilið frá okkur.