fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Það er ekki að ástæðulausu að við hugsum um öryrkja á sama tíma og við hugsum um fátækt og að við hugsum fátækt þegar við hugsum um öryrkja. Það er vegna þess að kerfið okkar er skapað þannig. Það er vegna þess að þetta ástand hefur verið til margra ára og skapar áhættuþætti fyrir alls konar heilbrigðisvanda, geðheilbrigðisvanda — nefndu það bara — að vera á leigumarkaði. Öryrkjar eru líklegri en aðrir til að þurfa að kljást við slíkt. Þess vegna er furðulegt að vera hérna og tala um einhverjar smáar upphæðir, um eingreiðslu til fólks sem stendur frammi fyrir fátækt oft og tíðum. Við vitum það öll. Og við vitum það öll að það sem öryrkjar fá í mánaðargreiðslur er skammarlegt og við vitum það að ef þeir fara að vinna geta þeir misst þessar mánaðargreiðslur sínar, sérstaklega ef þeir standa ekki sína plikt. Það er eiginlega bara frekar sorglegt að standa hérna og þurfa að tala fyrir þessu vegna þess að þetta á að vera sjálfsagt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)