fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Í ljósi þess að hæstv. félagsmálaráðherra er enn þá hér í húsinu vil ég bara enn og aftur skora á hann að setja sig á mælendaskrá, koma hingað upp, hvort sem það er undir þessum dagskrárlið eða í umræðunni um fjáraukalögin á eftir, og eyða óvissu fólksins þarna úti um hvort veitt verði svona eingreiðsla skatta- og skerðingarlaust í ár eins og í fyrra. Það er bara það minnsta sem hann getur gert. Ef hæstv. ráðherra getur ekki lýst því hvert ríkisstjórnin er að fara með almannatryggingakerfið, hvað í ósköpunum gengur á, í guðanna bænum eyddu þá óvissu fólksins þarna úti um þetta, hvort þessi eingreiðsla verði veitt eða ekki. Ekki láta fólkið hanga svona, bíða svona. Þetta er gersamlega óboðlegt. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)