152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:45]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Þetta er náttúrlega eitt af dæmunum um að það skiptir máli hver stjórnar hvaða ráðuneyti. Að Sjálfstæðisflokkurinn sé með lyklavöldin í fjármálaráðuneytinu þýðir að það þarf væntanlega að berjast fyrir öllum félagslegum úrbótum. Það þarf að berjast fyrir öllu sem heitir auknar fjárveitingar til velferðarmála. En er barist fyrir því í þessari ríkisstjórn? Það er náttúrlega spurningin sem við þurfum að spyrja okkur: Er barist fyrir þessari 50.000 kr. eingreiðslu í stjórnarflokkunum, við ríkisstjórnarborðið? Miðað við hvernig hæstv. félagsmálaráðherra talaði hér áðan er ég ekkert viss um það. Þá held ég að fólk sé bara búið að kyngja þeirri pillu að það þurfi að vísa í einhverja heildarendurskoðun frekar en að styðja þá kröfu sem þau segjast síðan öll hlusta á.

En mig langar bara að nefna, frú forseti, fyrst ég er kominn aftur í pontu að ég er hérna með mælendaskrána fyrir framan mig og veiti því athygli að hæstv. félagsmálaráðherra er enn ekki búinn að skrá sig á mælendaskrá. Er það í alvöru staðan að ráðherrann, sem fjármálaráðherra hvatti til að myndi koma í hús til að svara fyrir þessa stöðu, ætli ekkert að gera það? Vegna þess að virðulegur forseti er í sama flokki og ráðherrann velti ég fyrir mér hvort kannski væri hægt að skjóta skilaboðum á hæstv. ráðherra og hvetja hann til að skrá sig alla vega í eins og eina ræðu til að útskýra. Hún þarf ekkert að vera löng. Við erum í rauninni bara að kalla eftir já- eða nei-svari við spurningunni: Ætla þú að styðja að öryrkjar fái eingreiðslu?