fjáraukalög 2021.
Virðulegur forseti. Ég segi eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson: Ég er nýr og er að reyna að læra á þetta kerfi. Mér þykir það sérstakt ef þannig háttar til í landslagi stjórnmála á Íslandi að sá sem hefur lyklavöldin í fjármálaráðuneytinu ráði öllu. Það er orðin skrýtin staða ef svo er að við skulum vera hér með forsætisráðherra sem situr þá bara á kantinum, að við skulum vera hér með ráðherra sem fá bara úthlutað eins og einhverjum öðrum hentar og að við séum með þing sem fær engu áorkað af því að sá sem situr í fjármálaráðuneytinu ræður öllu. Á hvaða leið erum við þá sem samfélagið ef þetta er orðið staðan: Fjármálaráðherra ræður öllu? Það er kannski þannig ef fólk er ekki tilbúið til að standa með sannfæringu sinni um að reyna að bæta þetta samfélag og af því að það er komið í eitthvert ráðuneyti þá selji það sannfæringu sína fyrir það af því að fjármálaráðherra ræður öllu. Er það virkilega þannig?