fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Ég er búinn að vera hérna aðeins lengur en hv. þingmaður. Ég er samt alltaf jafn hissa á ýmsu sem kemur hérna upp. En núna held ég að ég sé óvart orðinn smá ósammála því sem fram kom í fyrra svari mínu vegna þess að jú, reyndin er náttúrlega sú að fjármálaráðherra ræður öllu um fjármál ríkisins innan ákveðinna marka. En í þessu máli benti fjármálaráðherra sérstaklega á ráðherra málaflokksins og sagði: Hei, ekki spyrja mig. Talið við hann.
Ég er að snúast dálítið í skoðun minni á þessu vegna þess að þetta er svo óvanalegt. Fjármálaráðherrar standa skil á umræðu um sín frumvörp, alveg eins og félagsmálaráðherra stendur skil á umræðu um sitt frumvarp. Ef fjármálaráðherra vill að við séum að taka fagráðherrana sérstaklega fyrir þá getum við alveg dustað rykið af fyrirkomulagi sem við höfum stundum haft á umræðum um fjárlög þar sem hver fagráðherra mætir og svarar spurningum þingmanna um sitt málefnasvið. En það var alls ekki uppleggið með þetta frumvarp, sem sést kannski líka á því að hæstv. félagsmálaráðherra var ekki einu sinni í húsi þegar á hann var bent. Það þurfti að draga hann hingað inn og það var ekki einu sinni búið að segja honum að við ætluðumst til þess að hann ætti hér einhvern orðastað við þingmenn um það sem fjármálaráðherra hafði sagt að hann ætti nú helst að eiga orðastað við þingmenn um.
Og svona rétt í lokin, frú forseti, þá veiti ég því enn athygli að ráðherrann sem þetta snýst allt um, ráðherrann sem ber ábyrgð á því að ekki er gert ráð fyrir eingreiðslu til öryrkja, er enn ekki á mælendaskrá. Ég er að spá í hvort það sé eitthvert sambandsleysi í þingflokksherbergi Vinstri grænna.