152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[18:52]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir afskaplega fína ræðu eins og hans er von vísa. Ég er svolítið hugsi yfir þessu öllu. Á síðasta kjörtímabili skiptu Sjálfstæðisflokkurinn og Framsóknarflokkurinn með sér fjármálaráðuneytinu og félagsmálaráðuneytinu. Núna er Vinstrihreyfingin – grænt framboð komin inn í félagsmálaráðuneytið og við sjáum ofboðslega ljót fjárlög og í almannatryggingum er boðuð ofboðslega skringileg þróun að mörgu leyti þar sem gert er sérstaklega vel við tekjuhærri hópa eldra fólks en tekjulægri hóparnir, og m.a. konur, eru sérstaklega skildir eftir. Við sjáum það í því hvernig þróunin á frítekjumörkunum á að vera og eins sjáum við þessa hörku þegar kemur að málefnum öryrkja.

Nú þekkir hv. þingmaður betur en ég innvolsið í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Ég vil spyrja hvort hv. þingmaður telji að einhvers konar stefnubreyting sé að verða þar, hvort í rauninni eigi að sýna meiri hörku og reka meiri — ja, af því að við erum að tala um hægri og vinstri — hægri stefnu í þessum málaflokki á vakt Vinstri grænna en gert var á síðasta kjörtímabili.