fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Mig langar að taka sérstaklega undir það sem hv. þingmaður segir varðandi fjárlögin, þó að við séum ekki að ræða þau beinlínis hér, hvað þau komu á óvart, hvað þau eru pólitískt andlaus. Það er t.d. búið að setja aðhaldskröfu á alls konar framlög sem á ekkert að vera aðhaldskrafa á. Í ótengdu máli er aðhaldskrafa á framlög til sjálfstæðra fjölmiðla sem átti bara að vera krónutölustyrkur. Þessi aðhaldskröfuhugmyndafræði er náttúrlega bara einhver gömul thatcherísk „austerity“-pæling sem flest lönd eru hætt að iðka en eru enn þá trúarbrögðin uppi í fjármálaráðuneyti. En það er eins og ekki hafi farið fram nein gagnrýnin umræða ólíkra pólitískra sjónarmiða varðandi áherslur í frumvarpinu. Það er jú áhyggjuefni þegar ríkisstjórnin á í orði kveðnu að innihalda flokka sem spanna hið pólitíska litróf, að þess sjái ekki merki, sem við ætlumst til, að áherslur flokkanna skíni í gegn.
Svo finnst mér þessi fjáraukalög náttúrlega mjög skýrt dæmi um það. Það að þessi eingreiðsla til öryrkja sé ekki í þessum fjáraukalögum, þó að ástandið í samfélaginu sé nánast hið sama og það var fyrir ári þegar stjórnarliðum þótti ástæða til að setja þetta inn í fjáraukalög, bendir annaðhvort til þess að þau séu farin að herðast í einhverri hægrimennsku eða að þau hafi ætlað (Forseti hringir.) að eiga þetta eins og ás uppi í erminni til að geta spilað því út á síðustu metrum fyrir jól til að fá gott veður hjá fólki úti í samfélaginu þegar (Forseti hringir.) fer að renna upp fyrir því hversu slæm þessi fjárlög eru.