fjáraukalög 2021.
Virðulegi forseti. Þetta er athyglisvert allt saman. Munurinn á þessu og á síðasta kjörtímabil er náttúrlega líka sá að núna var uppi sú staða eftir kosningarnar að flokkar sem kenna sig við félagshyggju hefðu getað myndað ríkisstjórn. Núna er líka uppi sú staða að meira að segja Viðreisn, sem hefur frekar þótt vera hægra megin við miðju, er í rauninni félagshyggjusinnaðri þegar kemur að þessu ágæta máli en vinstri flokkurinn í ríkisstjórn. Ég geri fastlega ráð fyrir því að hv. þm. Jódís Skúladóttir, sem hélt sína góðu jómfrúrræðu hérna í gær, muni styðja þetta mál okkar en ég vona að það muni eiga við um fleiri í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði.