fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna og er á svolítið svipuðum nótum og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson sem kom hér í andsvör áður varðandi æðakerfið í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði. Mig langar aðeins að velta upp þeirri spurningu við hv. þingmann, sem þekkir þennan flokk og þá sem honum stjórna, sem er mikilvægt, sérstaklega þegar margir nýir þingmenn eru komnir um borð, hvort hann telji líkur á því, þar sem hæstv. fjármálaráðherra hefur nú gefið upp boltann og sett valdið algjörlega í fangið á hæstv. félagsmálaráðherra, að úthluta að hluta fjármunum og taka ákvörðun um úthlutun fjármuna, að þingmenn þessa flokks, hæstv. félagsmálaráðherra, sem brenna fyrir málaflokknum fái leyfi til að styðja við þetta góða mál. Af því að það þarf nú ekki marga til þess að hér myndist meirihlutasamstaða með þessu máli, rétt eins og hv. þingmaður kom inn á. Stjórnarandstöðuflokkarnir hafa hér 25 þingmenn og það þarf ekki að bæta mjög mörgum þingmönnum við, bara eins og einum þingflokki Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, ef heimild er fyrir, til að þessi góða tillaga stjórnarandstöðunnar, sem lögð var fram í dag, nái fram að ganga. Mig langar bara að spyrja hvaða líkur þingmaðurinn telur að séu á því að heimild fáist.