152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[19:01]
Horfa

Andrés Ingi Jónsson (P) (andsvar):

Frú forseti. Já, þetta er nefnilega dálítið áhugaverð staða sem við stöndum frammi fyrir vegna þess að það er búið að gefa boltann svo oft á milli að hann er hjá þinginu. Fjármálaráðherra sagði: Ekki ég, og benti á félagsmálaráðherra. Félagsmálaráðherra sagði: Ekki ég, þetta er komið til þings. Við hljótum að túlka það sem svo að þingið hafi eitthvað um þetta að segja, að ekki verði farið eftir einhverjum ströngum flokkslínum, að stjórnarflokkarnir verði allir tuktaðir til að standa gegn tillögu stjórnarandstöðunnar um eingreiðslu til öryrkja. Og miðað við fyrri orð margra hv. stjórnarþingmanna þá þætti mér nú undarlegt ef fólk lét það yfir sig ganga. En þetta held ég að verði líka önnur prófraunin, prófraunin á það í fyrsta lagi hvort stjórnarliðar geti brotið odd af oflæti sínu og samþykkt tillögu sem kemur frá stjórnarandstöðu, því að það hefur bara sjaldnast verið raunin, og hvort þingmenn stjórnarflokkanna geti staðið með drengskaparheitinu sem þau unnu að stjórnarskrá Íslands og greitt hér atkvæði eftir sannfæringu sinni um þessa tillögu. Það er próf sem ég vona að þau standist.