152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[19:03]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er aðeins að velta fyrir mér svari hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra. Hann nefndi að í rauninni væri þetta ekki í hans höndum heldur þingsins. Nú er téður ráðherra kominn í aðra stöðu en hann var í á síðasta kjörtímabili vegna þess að hæstv. ráðherra er einnig orðinn kjörinn fulltrúi í dag og er sá sem kemur til með að ýta á hnappinn sjálfur og greiða hér atkvæði í þinginu. Þannig að það að vísa þessu til þingsins — hann er auðvitað hluti af þinginu og þarf þess vegna að gera það upp við sig samkvæmt sinni eigin sannfæringu, varaformaður Vinstrihreyfingarinnar – græns framboðs, hvort hann ætlar að styðja við það að þessi hópur fái þessa fjárhæð skerðingarlaust.