fjáraukalög 2021.
Frú forseti. Þessi lína ráðherranna um að vísa til þingsins með afgreiðslu fjárlaga er líka bara della. Hæstv. fjármálaráðherra greindi t.d. frá því hér í umræðunni fyrr í dag að á föstudaginn kemur muni ríkisstjórnin fjalla um tillögur sínar sem fjárlaganefnd geti síðan gert að sínum fyrir 2. umr. fjárlaga. Það er Stjórnarráðið sem gerir drög að tillögu meiri hluta fjárlaganefndar. Ráðherrann sagði það hér í sal. Hæstv. félagsmálaráðherra getur heldur ekki skýlt sér á bak við þingið af því að hann hefur bara heilmikið um það að segja einmitt sem varaformaður stjórnarflokks hvað þingið gerir í þessu. Og fyrst ég er hér í mínu síðasta andsvari, frú forseti, að mér reiknast til, þá vil ég bara benda á að enn er hæstv. ráðherra ekki á mælendaskrá. Er ekki alveg í lagi?