152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

fjáraukalög 2021.

174. mál
[19:16]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P):

Frú forseti. Ég ákvað að koma aftur í ræðustól til að gefa hæstv. ráðherrum tækifæri á að klára matinn sem þeir eru að borða núna og koma og tala. Já, hæstv. ráðherrar og hv. þingmenn eru að borða, nokkuð sem margir öryrkjar þurfa jafnvel að neita sér um í kvöld og næstu daga til að geta haldið jól. Ég bind þó ekki miklar vonir við að eitthvað gerist því að hæstv. ráðherrar hafa þegar flúið þingsalinn án þess að koma sér á mælendaskrá. Þegar hæstv. félagsmálaráðherra kom hér áðan hafði hann greinilega ekki hlustað á það sem ég sagði um að við vildum ekki afsakanirnar: Það þarf að, eða: Þetta er vandamál þingsins. Þessi orð notaði hæstv. ráðherra í sínu stutta innleggi um fundarstjórn forseta.

Já, það lifir fólk við fátækt á Íslandi. Það er fólk sem getur ekki haldið jól. Það er fólk sem mun ekki geta borðað kvöldmat því að það hefur ekki efni á honum. Við hér munum berjast fyrir þessu fólki þangað til einhverju verður breytt.