breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Með þingsályktunartillögu þessari, sem lögð er fram samkvæmt ákvæðum laga um Stjórnarráð Íslands, er leitað eftir stuðningi Alþingis við fyrirhugaða breytingu á heitum og fjölda ráðuneyta í Stjórnarráðinu. Breytingin felur í sér að í stað atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis, félagsmálaráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og umhverfis- og auðlindaráðuneytis komi félags- og vinnumarkaðsráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti, innviðaráðuneyti, matvælaráðuneyti, menningar- og viðskiptaráðuneyti, mennta- og barnamálaráðuneyti og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneyti. Með breytingunni fjölgar ráðuneytum úr 10 í 12.
Frú forseti. Greinargerð tillögunnar talar sínu máli og ég vona að hún útskýri þá meginhugsun sem er að baki þeim breytingum sem áformaðar eru og ég mun koma nánar inn á þau sjónarmið í síðari hluta ræðu minnar. En fyrst vil ég vekja máls á skipulagi Stjórnarráðsins almennt og inntaki þess sem kallað hefur verið verkskipulagsvald forsætisráðherra, sem hefur þróast ört síðasta áratug eða svo og er meðal mikilvægustu stjórntækja framkvæmdarvaldsins.
Á tímum hraðra samfélagsbreytinga, tæknibreytinga, loftslagsbreytinga og örrar samfélagsþróunar með síbreytilegum áskorunum hefur mikilvægi skýrrar verkstjórnar og markvissrar skipulagningar Stjórnarráðsins, með hliðsjón af þeim breytingum, orðið sífellt skýrara. Regluleg endurskipulagning og tilfærsla verkefna milli ráðuneyta Stjórnarráðsins er nauðsynlegur liður í því að mæta nýjum áskorunum og verkefnum um leið og slíkar breytingar geta út af fyrir sig verið hreyfiafl breytinga og framfara.
Samkvæmt hinum almenna skilningi á verkskipulagshlutverkinu leggur það á herðar forsætisráðherra þá ábyrgð að tryggja að skipulag Stjórnarráðsins sé þannig að það fái sinnt skyldum sínum og sé sem best í stakk búið til að innleiða þá stefnumótun sem stjórnvöld hyggjast setja af stað á hverjum tíma. Með eldri lögum um Stjórnarráð Íslands, sem sett voru árið 1969, var sú grundvallarbreyting gerð að skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands var bundin í lög. Þetta er fyrirkomulag sem við getum kallað íslenskt fyrirkomulag því að slíkt fyrirkomulag hefur til að mynda ekki verið við lýði annars staðar á Norðurlöndum, víðast hvar. Sú breyting og sú löggjafarframkvæmd að tiltaka í sérhverjum lögum hvaða ráðherra skyldi fara með framkvæmd þeirra gerði það að verkum að verkskipulaghlutverkið var í raun fært frá framkvæmdarvaldinu til löggjafarvaldsins, þvert á fyrirmæli 15. gr. stjórnarskrárinnar, sem gerir ráð fyrir að valdið til þessa sé á höndum forsætisráðherra með atbeina forseta Íslands. Því þurfti ávallt að leggja fram frumvarp á Alþingi þegar tilefni þótti til breytinga á verkskipulagi innan Stjórnarráðsins.
Á þeim tíma þótti brýn nauðsyn að koma ákveðinni röð og reglu á skipulag Stjórnarráðsins og má því segja að lögin, með því að telja upp þau ráðuneyti sem skyldu vera starfandi í Stjórnarráðinu, hafi þjónað tilgangi sínum. Leiddi þessi breyting til þess að ákveðið rof varð í ábyrgðarkeðjunni og á því grunnskipulagi sem stjórnskipan landsins gerir ráð fyrir. Grunnregla íslenskrar stjórnskipunar, eins og annarra lýðræðisríkja, er þrískipting ríkisvaldsins þar sem Alþingi setur lög og ákveður meginverkefni framkvæmdarvaldsins. Stjórnsýsla er lögbundin og hrindir öðrum verkefnum framkvæmdarvaldsins í framkvæmd ásamt lögum. Í þeirri vinnu skiptir skipulag máli og framkvæmdarvald sem hefur ekki vald á eigin skipulagi er að hluta til ábyrgðarlaust.
Það er grunnregla í lýðræðisríkjum að vald og ábyrgð skuli fara saman og endurheimt verkskipulagshlutverksins með lögunum sem samþykkt voru hér á Alþingi 2011, um Stjórnarráð Íslands, var ákveðið grundvallaratriði í endurreisn Stjórnarráðsins eftir efnahagshrun. Þar voru m.a. dregnir lærdómar af skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um að þetta hlutverk, ásamt almennu forystu- og samhæfingarhlutverki forsætisráðherra, þyrfti að efla og bera stjórnarráðslögin frá 2011 þessarar viðleitni skýrlega merki. Það er því óskorað hlutverk og ábyrgð forsætisráðherra á hverjum tíma að gæta þess að grunnskipulag Stjórnarráðsins sé þannig að sem bestur árangur náist við framkvæmd lögbundinna verkefna sem og við stefnumótun og framkvæmd áhersluverkefna ríkisstjórnar hverju sinni.
Eins og einhverjir hv. þingmenn muna þá var sú saga þannig að þáverandi hæstv. forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, lagði fram þetta frumvarp til laga til að breyta lögunum um Stjórnarráðið til að skerpa á þessu hlutverki forsætisráðherra, en eftir töluvert miklar umræður hér í þingsal, þar sem þingmenn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks andæfðu þessari nýskipan, fæddist sú málamiðlun að forsætisráðherra skyldi leggja fram þingsályktunartillögu um skipan ráðuneytanna. Það er sú tillaga sem ég legg hér fram núna. En þetta er áhugaverður lærdómur sem við getum dregið af sögunni og ég hygg að hann verði áhugaverður í ljósi þeirrar umræðu sem ég vænti hér í kvöld.
Það eru margar leiðir færar til að skipuleggja stjórnarráð í hverju ríki og Stjórnarráð Íslands er þar engin undantekning. Mér finnst mikilvægt að undirstrika að það skipulag sem ég er hér að leggja til er ekki skipulag sem ég tel að eigi að standa óbreytt um alla framtíð, enda er ég ekki þeirrar skoðunar að skipulag Stjórnarráðsins eigi að vera bundið í lög heldur tel ég einmitt að það sé framkvæmdarvaldsins að skipta með sér verkum á hverjum tíma, skipuleggja sína framkvæmd með öðrum orðum, og tryggja að hún þjóni pólitískum áherslum og stefnumótun hverju sinni. Mér er ljóst að breyttar áherslur og áskoranir þeirra ríkisstjórna sem síðar munu koma munu án efa kalla á breytt skipulag og þá tel ég líka eðlilegt að komandi forsætisráðherrar axli þá ábyrgð sem því hlutverki fylgir og móti skipulag Stjórnarráðsins þannig að það fái sem best sinnt sínum verkefnum.
Af því að ég sé nú að tíminn er mjög skammur sem ég hef hér til að mæla fyrir þessari þingsályktunartillögu þá ætla ég ekki að fara nánar í þessa forsögu, en hún er samt mikilvæg fyrir þá umræðu sem hér fer fram. En eins og ég kom að í stefnuræðu minni tel ég að það sé fullt tilefni til þess að fara yfir lögin um Stjórnarráðið frá árinu 2011 og meta það hvernig við teljum að þau hafi þjónað hlutverki sínu, hvort þau hafi tryggt þann sveigjanleika sem þeim var ætlað að tryggja, hvort þau hafi tryggt með þeim hætti sem við teljum best þetta mikilvæga samhæfingarhlutverk forsætisráðherra hverju sinni. Og eins og ég boðaði mun ég eiga samráð við alla flokka sem sæti eiga á Alþingi, því að eins og ég hef nefnt þá lít ég ekki svo á að skipulag Stjórnarráðsins sé markað í stein og það er mjög mikilvægt að allir flokkar eigi þátt í samtali um það hvernig við teljum að lagarammanum eigi að vera háttað.
Frú forseti. Ísland stendur nú frammi fyrir áskorunum sem krefjast nýrrar hugsunar, skapandi lausna. Ég nefndi hér áðan loftslagsbreytingar, orkuskipti, réttlát umskipti, sjálfbæra þróun, breytta samsetningu samfélagsins og stafrænar umbreytingar eða tæknibreytingar. Þetta eru dæmi um þær stóru áskoranir sem krefjast þess að stjórnkerfið vinni saman sem ein heild og taki í auknum mæli upp þverfaglega nálgun á þau viðfangsefni sem við stöndum frammi fyrir. Stjórnarsáttmáli ríkisstjórnarinnar snýst að stóru leyti um þessi stóru verkefni. Ég get farið í nánari smáatriðum yfir þau en vil nefna nokkur þeirra.
Ég vil til að mynda nefna íslenska tungu og stöðu hennar í alþjóðasamfélaginu. Stór hluti af því að huga að íslenskri tungu er að lyfta sérstaklega vægi menningar í Stjórnarráðinu. Það hefur verið krafa undanfarinna ára að menningin fái aukið rými í stjórnsýslunni og það er gert með því að leggja til breytta ráðuneytaskipan þar sem saman fara menning, viðskipti og ferðaþjónusta þar sem horft er til þess að hluti menningarinnar eru hinar skapandi greinar sem við tölum gjarnan um þegar við ræðum um menningu sem atvinnustarfsemi. Þetta skiptir máli. Við teljum líka að þessar greinar, hvort sem það eru hinar skapandi greinar eða ferðaþjónustan, standi að einhverju leyti frammi fyrir sambærilegum áskorunum nú í kjölfar heimsfaraldurs þar sem þær hafa tekið á sig verulegt högg.
Ég vil líka nefna verkefni sem kalla á aukna samhæfingu ráðuneyta. Þar vil ég sérstaklega nefna stefnu um sjálfbæra þróun sem verður mótuð á þessu kjörtímabili og sömuleiðis velsældaráherslur og velsældarmælikvarða sem eru verkefni sem við lögðum af stað með á síðasta kjörtímabili og hafa þegar skilað mikilvægum árangri í því verkefni að meta samfélag okkar út frá fjölbreyttari mælikvörðum en eingöngu hinum efnahagslegu og meta þannig árangurinn sem við náum sem samfélag, ekki eingöngu út frá efnahagslega mælikvarðanum heldur til að mynda út frá andlegri heilsu, hvernig fólki gengur að öðlast aukið jafnvægi á milli vinnu og einkalífs. Allt kallar þetta á þessa auknu samvinnu. Hugmyndafræði sjálfbærni og réttlátra umskipta tengist þessu.
Það má segja að hugsunin á bak við allar þessar breytingar snúist um að efla samstarf ráðuneyta. Ég veit það eftir að hafa verið fagráðherra á árunum 2009–2013, þegar ég gegndi embætti mennta- og menningarmálaráðherra, að mest krefjandi verkefnin sem ég átti við sem ráðherra í því ráðuneyti á vissulega krefjandi tímum voru verkefni sem kölluðu á samstarf ráðuneyta. Við höfum byggt upp stjórnsýslu sem er að miklu leyti byggð upp í sílóum og það er auðvitað lengri umræða og miklu stærri en svo að hún snúist bara um verkaskiptingu milli ráðherra og ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands, hún snýst líka um það hvernig við nálgumst verkefnið sem samhent ríkisstjórn. Það er annað sem við ættum kannski að ræða við betra tækifæri þegar við ræðum stjórnarskrána og breytingar á henni, því að að einhverju leyti erum við með kerfi sem byggir mjög undir ráðherraræði í einstökum ráðuneytum á sama tíma og við þurfum að vera með miklu meiri samhæfingu og miklu meira samstarf á milli ráðuneyta.
Til að tryggja slíka samhæfingu skiptir miklu máli að við byggjum á þeirri reynslu sem við höfum öðlast, til að mynda í skýrslum rannsóknarnefnda Alþingis sem varða það hvernig við getum styrkt betur stjórnsýsluna. Ég vil nefna í því samhengi skýrslu mína til Alþingis um viðbrögð við ábendingum rannsóknarnefndar Alþingis sem lögð var fram á 151. löggjafarþingi. Þessi mál voru töluvert til umræðu á sínum tíma þegar lögunum um Stjórnarráðið var breytt. Þá var mikið rætt um hreyfanleika verkefna milli ráðuneyta og líka við myndun nýrra ríkisstjórna í samræmi við það sem tíðkast til að mynda í Danmörku og Noregi. Stjórnarráðið þyrfti að vera tilbúið til að mæta bæði breyttum pólitískum áherslum og samfélagslegum breytingum. Eitt af því sem ég tel að skipti verulegu máli til að þessar breytingar geti tekist vel er að við hugsum um Stjórnarráðið í auknum mæli sem hreyfanlegan vinnustað, að við gerum ráð fyrir því þegar við skipuleggjum störf okkar að málaflokkar kunni að flytjast á milli ráðuneyta án þess að það valdi því að þekking glatist eða stofnanaminni hverfi. Þetta er eitt af því sem við þurfum að hafa augun á í svona breytingum. Ef við gerum þetta vel hef ég hins vegar mikla trú á því að Stjórnarráð Íslands geti notið þess að vera hreyfanlegra en það hefur verið hingað til, að það geti skapað tækifæri til að leiða saman, eins og ég nefndi hér áðan, menningu, ferðaþjónustu, viðskipti, að það geti skapað ómæld tækifæri að tryggja að innleiðing laga um farsæld barna sé í sama ráðuneyti og leikskólar, grunnskólar, framhaldsskólar, þar sem börnin okkar eru að læra, þar sem skiptir einmitt máli að ná til þeirra til þess að tryggja að þau geti notið bestu mögulegu velferðarþjónustu.
Að setja saman orku, umhverfi, loftslag og náttúruvernd snýst um það að við vitum hversu miklu skiptir að orkuskipti og nýting orku heppnist vel, að hún sé í samræmi við sjónarmið okkar um umhverfis- og náttúruvernd og þjóni loftslagsmarkmiðum okkar. Þessi hugsun var þegar fædd 2011 þegar við stofnuðum umhverfis- og auðlindaráðuneyti, því að það ráðuneyti átti auðvitað að snúast um umhverfisvernd og auðlindanýtingu. Við stígum eitt skref í þeirri vegferð með því að færa orkuna, þá mikilvægu auðlind, yfir í umhverfisráðuneytið og horfum þá til þess að sú nýting skiptir verulega miklu máli til þess að ná markmiðum okkar í loftslagsmálum.
Vinnumarkaðsmálin munu fá aukið vægi með því að lyfta þeim upp í félagsmálaráðuneytinu þar sem vinnumarkaðsmálin hafa verið hýst, vegna þess að það skiptir máli að við leggjum aukna áherslu á það hvernig við getum, í góðu samráði við aðila vinnumarkaðarins, unnið að heilbrigðari vinnumarkaði þar sem við erum í þeirri stöðu, eins og við öll vitum sem erum hér í þessum sal, og sú sérstaða hefur markað okkur hér á Íslandi, að hér er yfirleitt töluverður fjöldi samninga laus og því miður oft ekki sest að samningaborðinu fyrr en samningar hafa verið lausir í verulega langan tíma. Þarna er átaks þörf og það skiptir máli að lyfta þessum málaflokki. Um leið færum við framhaldsfræðsluna yfir í þetta ráðuneyti af því að við viljum tryggja að vinnumarkaðurinn geti einmitt tekist á við þær breytingar sem ég verð að nefna; tæknibreytingar, loftslagsbreytingar, af því að menntunin er eitt mikilvægasta tækið til að tryggja hreyfanleika fólks á vinnumarkaði og í lífinu og samfélaginu og tryggja jöfn tækifæri til að takast á við þessa hluti.
Ég vil nefna að lokum, af því að tími minn er afskaplega skammur, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti. Þessir málaflokkar hafa verið leiddir saman í Vísinda- og tækniráði þar sem við höfum í raun og veru verið að reyna að byggja þessar mikilvægu brýr milli háskólavísinda, grunnrannsóknanna annars vegar og hins vegar tækniþróunar og nýsköpunar. Það hefur í raun og veru gengið vel allt frá árinu 2009 þegar fyrstu lögin um opinberan stuðning við nýsköpun voru sett. Við erum búin að sjá stórkostlega framþróun á þessu sviði þar sem hugverkageirinn er núna orðin ein lykilútflutningsstoðin fyrir Ísland. Með þessari breytingu erum við enn að styrkja þessa mikilvægu útflutningsstoð og segja í framtíðarsýn okkar með breytingum á Stjórnarráðinu að við teljum að hugvitið sé framtíðin fyrir íslenskt atvinnu- og efnahagslíf.
Frú forseti. Þetta var styttra en ég hugði. Ég biðst afsökunar á að fara fram yfir í tíma en vonast til að eiga góða umræðu um þessar breytingar.