152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:16]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Mig langar að byrja á því að nýta tímann og inna hæstv. forsætisráðherra eftir því hvort fyrir liggi kostnaðargreining á þessu, þessum breytingum. Hvað munu þær kosta og hvernig hyggst ríkisstjórnin gera grein fyrir kostnaðinum eða áætlunum um hann og verður það gert hér við afgreiðslu fjárlagafrumvarps? Það væri gott að fá þær upplýsingar strax við upphaf þessarar umræðu hér í kvöld. Það er auðvitað grundvallaratriði að lagt sé af stað með það svona nokkurn veginn í hausnum út í hvaða ferðalag við erum að leggja.

Hitt sem mig langar til að spyrja hæstv. ráðherra um er: Hvenær varð þessi hugmynd til? Hversu lengi hefur hún verið í undirbúningi?