breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Áætlaður kostnaður við það að setja á laggirnar tvö ný ráðuneyti nemur u.þ.b. 450 millj. kr., þ.e. 190 milljónir í stofnkostnað á hvort ráðuneyti og síðan rúmar 50 milljónir, ég man ekki nákvæmlega töluna, 56, ef ég man þetta rétt, sem er kostnaður við einn viðbótarráðherra og tvo aðstoðarmenn, sem fer af öðrum lið. Hvenær kom þessi hugmynd upp? Ja, í aðdraganda kosninga var Vinstrihreyfingin – grænt framboð með ákveðnar hugmyndir um að stokka ætti upp í Stjórnarráðinu, horfa til þess að tengja betur saman grunnrannsóknir og nýsköpun og breyta vægi menningar í stjórnkerfinu. Ef ég man það rétt var Framsóknarflokkurinn með þá hugmynd að horfa ætti til innviðaráðuneytis. Þannig að þessar hugmyndir voru uppi á borðum hjá alla vega þessum flokkum í aðdraganda kosninga og voru því til umræðu í stjórnarmyndunarviðræðum.