breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka ráðherranum svarið. Þetta er auðvitað engin skiptimynt sem fer í þessar breytingar. Ég geri mér grein fyrir því að þetta kostar eitthvað og hér sýnist mér það kosta hálfan milljarð að gera þessar breytingar á Stjórnarráðinu. Önnur spurning sem mig langar að fá svar við hér í upphafi, af því að hæstv. forsætisráðherra talar um að það hafi verið ýmsar hugmyndir í umræðunni fyrir kosningar, ég man eftir sumum og öðrum ekki, ég man betur eftir umræðunni um innviðaráðuneytið: Var gerð einhvers konar þarfagreining við myndun þessarar ríkisstjórnar um það hvar mest samlegð væri í málaflokkum og hvernig þeir ynnu best saman? Ég held að við höfum öll okkar eigin hugmyndir og skoðanir á því hvernig þetta ætti að vera og hvað okkur þætti gaman að prófa, en var gerð einhver slík greining sem liggur til grundvallar?