152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:19]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Já, mér þykir verra að hv. þingmaður hafi ekki lesið kosningaáherslur Vinstri grænna jafn vel og hún las kosningaáherslur Framsóknarflokksins, en ég reyni að lifa með því. Það hefur lengi verið okkar stefnumið að horfa sérstaklega á annars vegar samþættingu vísinda og nýsköpunar og háskóla, því að það teljum við að feli í sér gríðarleg sóknarfæri fyrir þekkingargeirann, og hins vegar höfum við haft á því mikinn áhuga að efla vægi menningar í stjórnsýslunni. Þar höfum við fyrst og fremst verið að hlusta; hlusta á bandalag íslenskra listamanna, hlusta á forsvarsmenn menningarstofnana sem hafa einmitt kallað eftir þessu.

Það liggur ekki fyrir þarfagreining, enda nálgast ég þetta verkefni út frá þeim hugmyndum sem finna má í stjórnarráðslögunum um forystu- og samhæfingarhlutverk forsætisráðherra hverju sinni sem ber á því ábyrgð að skipulag Stjórnarráðsins endurspegli áherslur ríkisstjórnar hverju sinni. Það er í raun og veru hugmyndafræðin sem ég byggi á sem við sækjum auðvitað til annarra Norðurlanda þar sem þessar breytingar eru tíðar. Það sem ég tel hins vegar að við getum lært af þeim er að horfa (Forseti hringir.) til þess hvernig við getum lagað Stjórnarráðið að því að verða hreyfanlegra til lengri framtíðar (Forseti hringir.) þannig að ný ríkisstjórn hverju sinni geti hagað sínum málum. — Afsakið, frú forseti.