152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:21]
Horfa

Jóhann Páll Jóhannsson (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir yfirferðina. Ég verð nú að viðurkenna að miðað við þá röskun og kostnaðinn sem þetta allt saman felur í sér þá er greinargerðin sem fylgir þessari þingsályktunartillögu ekki sérlega sannfærandi. Þetta hljómar að mörgu leyti eins og einhvers konar eftiráskýringar vegna einhvers sem hefur kannski meira með pólitískan stólaleik að gera en að einhvers konar fagleg sjónarmið búi þarna að baki. Það er margt hérna sem vekur upp spurningar. Eitt sem mig langaði að inna forsætisráðherra eftir er sú staðreynd að verið er að færa framfylgd laga og reglna um undirbúning stjórnarfrumvarpa úr forsætisráðuneytinu til dómsmálaráðuneytisins, til hæstv. ráðherra Jóns Gunnarssonar. Þar með færist allt gæðaeftirlit með frumvörpum frá ríkisstjórninni yfir í dómsmálaráðuneytið. Ég vil spyrja hæstv. forsætisráðherra hvers vegna þetta er gert. Ég sé að vísað er til Danmerkur, að þetta sé svoleiðis þar, en það eru ekki endilega rök í sjálfu sér. Gafst það illa á síðasta kjörtímabili að hafa þetta hlutverk í forsætisráðuneytinu?