152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:22]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Það eru engin náttúrulögmál í þessu og áður en þetta var flutt í forsætisráðuneytið var þetta hér á Alþingi, þannig að það er mjög stutt síðan þetta var flutt yfir í forsætisráðuneytið. Þetta er mjög afmarkað verkefni og snýst fyrst og fremst um yfirlestur lagafrumvarpa og að tryggja að þau uppfylli þau sjónarmið sem stjórnvöld setja hverju sinni, en þarna fer ekki pólitísk stefnumótun fram. Þetta var áður hér á Alþingi, var fært yfir í forsætisráðuneytið og raunar var líka vangavelta til skoðunar fyrir fjórum árum um hvar þetta ætti best heima. En það er nú svo, og það slær mig svona þegar hv. þingmaður talar um þessa miklu röskun og að hér séu ekki fagleg sjónarmið, að þegar við skoðum söguna má nú sjá að verkefnin eiga ekki heima einhvers staðar út frá náttúrulögmálum heldur snýst þetta bara um pólitíska stefnumótun hverju sinni.

Mig langar að spyrja hv. þingmann á móti hvað honum finnst þá um það þegar til að mynda ríkisstjórn systurflokks flokks hans í Noregi setur á laggirnar ný ráðuneyti eða ríkisstjórn systurflokks hans í Danmörku setur á laggirnar ný ráðuneyti. Telur hann það vera röskun og óþarfa eða telur hann það til marks um skýra (Forseti hringir.) pólitíska stefnumótun hjá ríkisstjórnum systurflokka flokks hans?