breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Mér finnst besta mál að stofna nýtt ráðuneyti, en maður gerir þá kröfu að það sé þá sannfærandi rökstuðningur fyrir því. Eitt sem maður veltir fyrir sér er að þarna kemur til sögunnar nýtt innviðaráðuneyti og rökstuðningurinn fyrir því er að það geti þá gagnast við innviðauppbyggingu að sameina þarna marga málaflokka í einu stóru ráðuneyti. Þá velti ég því fyrir mér hvort hæstv. forsætisráðherra hafi engar áhyggjur af því að það geti veikt menntamálin að tæta þau í sundur yfir mörg ráðuneyti, hvort þetta séu ekki röksemdir sem gangi þá í báðar áttir.
Annað sem maður veltir fyrir sér er að í kaflanum um félagsmála- og vinnumarkaðsráðuneytið er talað um mikilvægi góðs samspils hagstjórnar og kjarasamninga, en um leið er verið að færa allan húsnæðisstuðning og húsnæðismarkaðinn undir þetta innviðaráðuneyti þegar það liggur í augum uppi hvað það skiptir miklu máli t.d. í kjarasamningum í vetur að stutt verði með markvissum hætti við félagslega húsnæðisuppbyggingu. Hvernig fer þetta saman?