breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég skil alveg spurningu hv. þingmanns um að skipta upp menntamálaráðuneytinu. Nú þekki ég þetta ráðuneyti ágætlega eftir að hafa verið þar sjálf í fjögur ár. Þetta er alveg gríðarlega umfangsmikið ráðuneyti eins og það hefur litið út hingað til. Það er kannski ástæðan fyrir því ákalli sem við höfum heyrt frá listamönnum og menningarstofnunum um aukið vægi í stjórnsýslunni. Þegar maður leggur af stað í þá vegferð að skoða ráðuneytin hvert fyrir sig þá horfir maður auðvitað til þess sem tíðkast á Norðurlöndum þar sem grunn-, leik- og framhaldsskólar eru einmitt iðulega saman í einu ráðuneyti og háskólar og vísindi saman í öðru. Það er innblásturinn sem við tökum inn í þessa uppskiptingu því að þetta eru hvorir tveggja mjög mikilvægir málaflokkar sem vissulega eiga ákveðna samlegð en þeir þurfa ekki endilega að vera saman í ráðuneyti til að ná þeirri samlegð. Hvað varðar innviðaráðuneytið sækjum við aftur ákveðinn innblástur til Norðurlanda þar sem skipulagsmál, sveitarstjórnarmál og húsnæðismál eru iðulega saman í ráðuneyti til að öðlast megi betri yfirsýn yfir (Forseti hringir.) uppbyggingarþörfina. Og ég gæti sagt margt meira, frú forseti.