breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra framsöguna. Nú ætla ég ekki að fara út í neitt hringl eða aðra slíka umræðu, en það er eitt sem vekur sérstaka athygli mína í þessu, það eru fjarskiptamál. Ég vil byrja á að fagna sérstaklega því að samgönguráðuneytinu sé breytt í innviðaráðuneyti. Ég held að það sé mjög góð breyting sem búið er að leggja til af mörgum aðilum með djúpa þekkingu á þessum geirum í langan tíma, þannig að ég fagna því. En ég skil ekki hvers vegna fjarskiptamálin eru tekin þar út. Ef forsætisráðherra ætti einhverja útskýringu á því þá þætti mér áhugavert að heyra hana, af því að ég sé ekki í tillögunni eða greinargerðinni að einu orði sé vikið að fjarskiptamálum í tengslum við hvar þau lenda. Mér skilst að þau lendi í viðskipta-, iðnaðar- … (Gripið fram í.) — Forseti góður. Nú eru nöfn þingmanna hér á lista en ég held að það væri skynsamlegt fyrir okkur þingmenn að settur yrði annar listi hér þar sem ný ráðuneytanöfn kæmu fram [Hlátur í þingsal.] svo við eigum einhvern (Forseti hringir.) möguleika á að muna hvað þau heita, þessi nýju ráðuneyti. En spurningin stendur, ágæti hæstv. forsætisráðherra.