152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:28]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Já, ég get alveg tekið undir með hv. þingmanni að það sé skynsamlegt að setja hér lista yfir nöfn ráðherra á meðan við venjumst þessum breytingum. Hvað varðar fjarskiptin eru þau auðvitað lykilatriði — og ég ítreka það, eins og ég sagði í ræðu minni, að það sem við leggjum til um það hvernig við högum verkefnunum er ekki hinn eini sannleikur og aðrar ríkisstjórnir kynnu að haga þeim öðruvísi. En ástæðan fyrir því að við setjum fjarskiptin í vísinda-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti er einfaldlega náin tengsl fjarskiptanna við tæknibreytingarnar, sem ég ræddi hér áðan í inngangsræðu minni, og að uppbygging í tengslum við þessar tæknibreytingar byggir fyrst og fremst á öflugu neti fjarskipta um land allt. Þetta varð niðurstaðan, að við vildum tengja þetta saman í þetta þekkingarráðuneyti, sem við gætum einfaldlega kallað svo, en fjarskiptin eru í raun og veru undirstaðan fyrir svo margt í þessu tiltekna ráðuneyti.