152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:29]
Horfa

Bergþór Ólason (M) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra svarið. Hitt sem mig langar til að reyna að ná utan um varðandi umfangsaukninguna sem verður á stjórnsýslunni með þessu — hæstv. ráðherra fór hér ágætlega yfir kostnaðarauka sem af þessu verður hvað grunnbreytinguna varðar. En mig langar að spyrja: Hver eru þau verkefni sem ekki flytjast frá öðrum ráðuneytum til hinna nýju ráðuneyta? Eru að verða til einhver alveg ný verkefni með þessu breytta skipulagi? Og þessu tengt, hvaða verkefni, sem sagt af þessum nýju verkefnum, ef einhver eru, voru það þá sem ekki var með haganlegum hætti hægt að koma fyrir í þeim ráðuneytum sem við þekkjum svo vel?