152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:30]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég gruna hv. þingmann um að vera íhaldsmaður svona inn við beinið þegar hann talar um hin gömlu ráðuneyti, sem við þekkjum svo vel, af slíkri væntumþykju. En minnum okkur á að ráðuneyti eru fyrst og fremst stjórntæki til að framfylgja stefnu. Þetta er ansi stór spurning sem hv. þingmaður kemur hér með: Hvaða verkefni eru ekki færð yfir en eru eigi að síður ný verkefni? Ja, ég þori ekki að segja að ég geti svarað því með algjörlega tæmandi hætti, en ég veit þó að til að mynda kemur nú fyrir í nýjum forsetaúrskurði verkefnið réttlát umskipti, sem er lykilatriði í stjórnarsáttmála og heyrir undir forsætisráðuneyti og skrifstofu stefnumótunar í forsætisráðuneyti og snýst um samþættingu á viðbrögðum við þessum miklu samfélagsbreytingum, hvort sem er tæknibreytingum eða loftslagsbreytingum. Þannig að það er til að mynda nýtt verkefni eða ný áhersla, getum við sagt.

Í forsetaúrskurði er einnig kveðið á um velsældarmælikvarða. Það er ekki nýtt verkefni. Það er verkefni sem við lögðum af stað með á síðasta kjörtímabili en er getið um í forsetaúrskurði. Ég vona að þetta skýri aðeins þessa mynd fyrir hv. þingmanni.