breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna varðandi tillögu til þingsályktunar um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands sem kveður á um að Alþingi álykti, með vísan til 2. gr. laga um Stjórnarráð Íslands, að styðja fyrirhugaða breytingu á fjölda og heitum þeirra ráðuneyta í Stjórnarráðinu. Ég tel að verið sé að fjölga ráðuneytum úr fimm í sjö.
En mig langar að spyrja hæstv. ráðherra forsætisráðherra varðandi flutning starfsmanna Stjórnarráðsins milli ráðuneyta: Er það starf hafið og mun verða farið eftir lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna? Ég tek t.d. dæmi varðandi forsætisráðuneytið að mannréttindamálin eru komin þangað, væntanlega úr dómsmálaráðuneytinu. Og það kemur reyndar ekki fram í tillögunni en varðandi samhæfingu skilst mér að loftslagsmálin séu líka komin til forsætisráðuneytisins. Ég vek athygli á því að nú er komið loftslagsráðuneyti. Hvað eru þá loftslagsmálin líka að gera í forsætisráðuneytinu?