152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:33]
Horfa

forsætisráðherra (Katrín Jakobsdóttir) (Vg) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil örstutt ítreka það vegna svars míns við spurningu hv. þm. Bergþórs Ólasonar áðan, að það er ekki hægt að búa til ný verkefni með forsetaúrskurði, eingöngu úthluta verkefnum sem ákveðið hefur verið að leggja áherslu á.

Ég þakka hv. þm. Eyjólfi Ármannssyni fyrirspurnina. Já, að sjálfsögðu verður gætt að lögum um réttindi og skyldur opinberra starfsmanna í þessum verkefnum. Við höfum átt samtöl við starfsmenn ráðuneytanna og það liggur alveg fyrir að það er misauðvelt að flytja verkefni. Stundum er einfaldlega um að ræða eina skrifstofu sem hægt er að flytja með manni og mús, en í öðrum tilfellum er stundum um að ræða verkefni sem sinnt hefur verið þvert á skrifstofur eða að hluta til af tilteknum starfsmönnum og þá kallar það að sjálfsögðu á samtal við starfsfólk og ákvarðanir. En ég legg á það ofuráherslu að í öllu þessu, og þar höfum við notið góðs stuðnings Kjara- og mannauðssýslu ríkisins, séu réttindi og kjör starfsfólks að sjálfsögðu tryggð.