152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:34]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið. Mig langar að spyrja varðandi það að fram kemur í greinargerð með tillögu til þingsályktunar að nú þegar sé búið að breyta tveimur forsetaúrskurðinum, þar á meðal forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráðinu, og svo einnig um skiptingu starfa ráðherra. Þegar þessi þingsályktunartillaga verður samþykkt, sem ég geri ráð fyrir að gangi í gegn, verður þá aftur farið að breyta forsetaúrskurðum? Þetta sýnir svolítið hversu mikill grautur þetta er allt saman, en 28. nóvember var breytt forsetaúrskurði um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Þar eru talin 10 ráðuneyti og við erum núna komin upp í 13 þannig að nú þarf aftur að gera gagngerar breytingar á forsetaúrskurðinum. Til hvers? Og verður það gert?