breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. 12 ráðuneyti, ætti það að vera, ekki 13. Þeim fjölgar úr 10 í 12, bara svo við höfum tölurnar á hreinu. Ég vil líka nefna vegna fyrra andsvars hv. þingmanns, vegna þess að loftslagsmálin eru nefnd á tveimur stöðum þá er það fyrst og fremst hlutverk forsætisráðuneytisins að horfa á samþættingu loftslagsmála við alla aðra stefnumótun í Stjórnarráðinu, en sjálf faglega stefnumótunin í loftslagsmálum er í umhverfis- og loftslagsráðuneytinu.
Hvað varðar það að horfa á breytingar á forsetaúrskurði þá er það svo að forsetaúrskurði var strax breytt við stjórnarskiptin til að tryggja að ráðherrar tækju utan um þá málaflokka sem ætlunin er að undir þau heyri. En við getum ekki breytt ráðuneytum nema að fá stuðning og samþykki meiri hluta Alþingis við breytingar á ráðuneytum. Það þýðir eðli máls samkvæmt að við gátum ekki fjölgað ráðuneytunum án þess að leita til Alþingis fyrst. Þannig eru lögin um Stjórnarráðið. En það er hins vegar hægt að breyta forsetaúrskurði og færa málaflokkana á milli. Mun forsetaúrskurðurinn breytast aftur? Já, mér finnst nú ekki ólíklegt að það verði einhverjar minni háttar breytingar þegar þessari ráðuneytaskiptingu er lokið.