152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:37]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Frú forseti. Ég kem hingað upp til að ræða tillögu til þingsályktunar sem hæstv. forsætisráðherra hefur nú mælt fyrir, um breytta skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands. Tillögunni mun svo væntanlega verða vísað til stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að lokinni fyrri umræðu. Mig langar í þessari ræðu fyrst og fremst að fara yfir almenn viðbrögð við þeim breytingum sem hér er verið að leggja til en fara kannski ekki djúpt í efnislega kafla. Það verður gert í nefndinni. Tillagan verður að sjálfsögðu skoðuð mjög vel þar.

Ég held, frú forseti, að spurningin sem við þurfum að svara sé: Styrkja þessar breytingar stjórnsýsluna og Stjórnarráðið? Eru þessar breytingar til þess fallnar að bæta árangur í starfi ráðuneytanna og í starfi Stjórnarráðsins? Ég ætla ekki að útiloka að svo sé og ég geri í sjálfu sér engan ágreining við hugmyndir um samsetningu ráðuneyta þó að ýmislegt sé þar sem ég vilji fá betri skýringar á þegar við förum að rýna tillögurnar betur. Ég held hins vegar að það að hafa augun á því til hvers við erum að þessu eða til hvers ríkisstjórnin vill breyta Stjórnarráðinu — og þá ætla ég bara að leggja til hliðar fjölgun ráðherra, þriggja flokka samstarf og alla þá pólitík sem augljóslega liggur þarna undir. Ég vil hins vegar ganga út frá því að tillagan sé sett fram til að bæta stjórnarhætti og ná betri árangri.

Það er auðvitað þannig, og það þekkja það öll sem starfað hafa innan Stjórnarráðsins, að þar standa í röð nokkrir súrheysturnar og ekki alltaf gagnvegir á milli þeirra. Og alveg burt séð frá þeim efnislegu breytingum sem hér eru lagðar til þá held ég að stóra verkefnið sé að brjóta niður múra á milli ráðuneyta og efla samvinnu. (Gripið fram í: Heyr, heyr.) Það er nauðsynlegt. En þetta fjallar líka um stjórnskipan Íslands og að ríkisstjórn Íslands er ekki fjölskipað stjórnvald, en ég ætla ekki að fara í þá umræðu í kvöld.

Hins vegar vitum við að Stjórnarráðið er ekki einn vinnustaður. Það eru margir vinnustaðir, mörg ráðuneyti, margar skrifstofur. Það eitt gerir samstarfið á milli ráðuneytanna oft þunglamalegt eða erfiðara en það ætti að vera. Og bara til að rifja það upp kom svo berlega í ljós við innleiðingu jafnlaunavottunar í Stjórnarráðinu að þar er ekki einn vinnustaður heldur þurfti að gera það í hverju ráðuneyti. Það sýndi okkur reyndar líka, án þess að ég ætli að fara að ræða um kjaramál í Stjórnarráðinu, að fólk er ráðið þar inn á býsna ólíkum forsendum eftir því í hvaða ráðuneyti það er ráðið til starfa. Þá kem ég að því atriði sem mér finnst mjög mikilvægt að við í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd höfum í huga og rannsökum vel. Hér er ekki bara verið að leggja til breytingar á verkefnum, heitum á ráðuneytum o.s.frv., það er verið að breyta vinnustöðum fólks. Það er verið að breyta vinnustöðum fólks sem á rétt á því að hafa skoðanir á þeim breytingum, taka þátt í þeim breytingum og geta aðlagast þeim með sómasamlegum hætti. Flutningur starfsfólks er auðvitað framkvæmdamál en það þarf að standa mjög vel að honum.

Annað sem lítið hefur verið rætt af þessu tilefni eru áhrifin sem síðan verða á undirstofnanir ráðuneyta. Það er svolítið verið að púsla því saman hvað á heima hvar og hver tilheyrir hverjum. Það er ekki eitthvað sem verður gert eða klárað á einni eða tveimur vikum. Ég sé fyrir mér að innleiðingin á þessum stóru breytingum geti tekið mánuði og jafnvel misseri. Ég held að það sé mjög mikilvægt að þingheimur hafi skilning á því og ríkisstjórnin hafi skilning á því að þessar breytingar verða ekki gerðar á einni nóttu, ef af þeim verður. Allir þurfa að vita hvað á heima hvar. Það er ekki bara af því að ég talaði hér um Stjórnarráðið sem vinnustað og reyndar marga vinnustaði. Hlutverk Stjórnarráðsins er náttúrlega þjónusta við borgarana, þjónusta við samfélagið okkar, þjónusta sem í rauninni starfrækir Ísland. Það verður að vera á hreinu í huga hins almenna borgara hvert hann eða hún á að leita, hver gerir hvað. Það má ekki verða óþarfaógagnsæi af þessum breytingum þannig að fólk eigi erfiðara með að átta sig á því hvað fer fram í ráðuneytum og hvaða þjónustu eða réttindi eða annað það getur leitað til ráðuneytanna með. Augljóslega þarf að huga að verkferlum, gæðum, stöðlum og öðru slíku.

Hæstv. forsætisráðherra talaði um sveigjanleika kerfisins og ég velti því fyrir mér hvort fjölgun ráðuneyta auki sveigjanleikann. Ég held að það sé ekkert gefið að það gerist. Fyrir áratug var farið í miklar breytingar á Stjórnarráðinu þar sem markmiðið var að gera ráðuneytin stærri og færri, sterkari, betri, árangursríkari. Nú erum við komin á annan stað. Í þessum skipulagsbreytingum í Stjórnarráðinu förum við kannski svolítið eins og pendúllinn á milli endanna, en það þarf að vera algjörlega á hreinu til hvers þessar breytingar eru gerðar. Hvaða árangri vill ríkisstjórnin ná með breytingunum? Hefur það í rauninni verið sett niður? Hafa ráðherrar sett niður fyrir sér: Til hvers erum við að þessu? Þessi málaflokkur á vel heima með þessum og þessi betur með hinum? En hvað?

Þó að það hljómi í sjálfu sér ekkert illa að færa saman vísindi og háskólastig og nýsköpun þá er samt löng hefð fyrir því að allt skólakerfið hangi saman í Stjórnarráðinu, ef maður má orða það þannig. Við þurfum að vita hvaða afleiðingar þetta hefur. Hvað þýðir það fyrir samverkan skólastiganna? Hvað þýðir það fyrir — eins og góðir vinir mínir á Menntavísindasviði sögðu við mig um daginn: Bíddu, erum við komin í iðnaðarráðuneytið? Háskóli er háskóli og við verðum að vita nákvæmlega til hvers við erum að gera þetta. Óttinn sem býr þar undir er auðvitað óttinn við að með einhverjum hætti sé verið að vega að sjálfstæði háskólanna og það má ekki vera. Þessar hugmyndir má skilja þannig að meira tal um beintengingu háskólastigs og atvinnulífs geti kannski með einhverjum hætti grafið undan hinu upprunalega hlutverki háskólanna. En við munum fara vel yfir þetta í nefndinni.

Hæstv. forsætisráðherra svaraði hér í andsvari spurningu minni um kostnaðinn og við förum auðvitað líka ofan í saumana á honum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Mér sýnist að málið sé dæmigert íslenskt að því leyti að nú á bara að rumpa þessu af. Það kann að vera að það sé eini hátturinn sem við Íslendingar kunnum til að breyta hlutunum, en við munum ekki rumpa neinu af í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Við munum skoða þetta mál mjög vel, forsendur þess, markmið, kostnað, hugsanlegar afleiðingar fyrir Stjórnarráðið sem heild og einnig fyrir fólkið sem er að vinna þar og hvernig þetta mun koma út fyrir það.

Ég ætla ekki að hafa fleiri orð um þessa tillögu, frú forseti, en vænti þess að eiga gott samstarf um hana við þingmenn í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd.