breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég kem fyrst og fremst hér upp til að þakka hv. þingmanni fyrir mjög góða ræðu og taka undir með þeim sjónarmiðum sem hún færði hér fram um að þjónusta við borgarana er auðvitað lykilhlutverk Stjórnarráðs Íslands. Það gleymist stundum hversu mikilvægt hlutverk þetta er og ég er algerlega sammála hv. þingmanni að ekkert rof má verða á því hlutverki Stjórnarráðsins.
Síðan vil ég segja að auðvitað er verið að vinna þetta hratt, en ég tel þó mikilvægt að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi núna tímann fram undan í janúar til að fara ofan í þær spurningar sem hv. þingmaður nefndi hér. Ég vil segja að þetta er eitt af því sem ég hef velt mikið fyrir mér hvað varðar hið akademíska sjálfstæði og frelsi háskóla, sem var einmitt fært í lög á tíma mínum sem mennta- og menningarmálaráðherra og skiptir alveg gríðarlega miklu í þessu samhengi, því að á sama tíma og það er eftirsóknarvert að tryggja að við byggjum brýr milli hugverkageirans og háskólanna má það ekki að vera á kostnað hinnar sjálfstæðu þekkingarleitar og grunnrannsókna sem eru engu háðar öðru en þekkingarleitinni.
Ég vildi bara koma hér upp því að þetta er mál sem mér finnst einstaklega mikilvægt og brennur á mér. En aftur vil ég ítreka að staða málaflokka í Stjórnarráðinu á ekki endilega að breyta þessum efnisatriðum sem eru til að mynda mjög skýr í lögum um háskóla, sem breytt var á sínum tíma, 2011, ef ég man rétt.
Ég vildi bara taka undir með hv. þingmanni og ítreka að forsætisráðuneytið mun að sjálfsögðu verða til allrar þjónustu reiðubúið við hv. nefnd þegar hún tekur þetta mál til umfjöllunar.