152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:50]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Mig langar, með leyfi forseta, að vísa í þessa þingsályktunartillögu en þar stendur:

„Kröfur um sveigjanleika og viðbragðsþrótt stjórnkerfisins hafa fengið síaukið vægi á umliðnum árum samhliða örum samfélagsbreytingum.“ Svo stendur hérna neðar:

„Þeim breytingum á ráðuneytisskipan Stjórnarráðs Íslands sem hér er gerð tillaga um er í samræmi við framangreint og er henni ætlað að tryggja að Stjórnarráðið sé sem best í stakk búið til að takast á við þau krefjandi samfélagsverkefni sem fram undan eru í samræmi við þær áherslur sem lagðar eru í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar fyrir komandi kjörtímabil.“

Mér heyrðist áðan, vonandi hefur mér ekki misheyrst, hv. þingmaður, þegar þú spurðir hæstv. forsætisráðherra um ný verkefni, og ég gat ekki annað heyrt á orðum hæstv. forsætisráðherra en að hún vissi ekki til þess að um væri að ræða einhver sérstök ný verkefni. Þá spyr maður: Til hvers er breytingin ef hún er ekki til að takast á við ný verkefni? Fyrir mér er þetta svolítið eins og að skjóta fyrst og spyrja svo. Hvaða skoðun hefur hv. þingmaður á því?

(Forseti (OH): Ég vil minna hv. þingmann á að nota ávarpsorð með réttum hætti.)