breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég tel það nú eiginlega ekki hlutverk mitt að svara fyrir ríkisstjórnina í þessum efnum, ég bara get það ekki. En það hlýtur auðvitað að vera þannig, alveg sama hver fjöldi ráðuneyta í Stjórnarráðinu er, að menn eigi að geta gripið þau verkefni sem þeir vilja sinna. Það sem er svo augljóst samt af þessum breytingum er, eins og fram hefur komið, að hér liggja hugmyndir þriggja flokka að baki, væntanlega. Það hentar þessum þremur stjórnarflokkum mjög vel að raða þessu saman með þessum hætti. Sumu af því hef ég skilning á, öðru ekki. Mér finnst sumt blasa við að sé hægt að gera. Mér finnst annað ekki eins vel útskýrt í þingsályktunartillögunni. Því verður það bara mjög þarft og nauðsynlegt verkefni að rýna þetta og fá fólk á fund nefndarinnar til að skýra breytingarnar betur. Í tillögunni er víða talað um áskoranir nýrra tíma, fjórðu iðnbyltinguna o.s.frv. Það eru margar áskoranir þarna úti í samfélaginu og við erum öll að fást við þær alla daga. En ég ætla að vona að þessar breytingar útiloki ekki neitt í þeim málum eða að stjórnarráðsbreytingarnar loki einhverjum dyrum. Skárra væri það nú.