152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[20:54]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég biðst velvirðingar á því ef ég er ekki að nota ávarpsorð rétt, ég er enn þá nemi hér svona til að byrja með. Ég vona að forseti virði viljann fyrir verkið. Mig langar að spyrja hv. þingmann, sem er hokin af reynslu hafandi verið umhverfisráðherra — ég var nú ekki að biðja hana um að verja ríkisstjórnina heldur bara að fá hennar skoðun á málefninu sem slíku. Við sjáum að það er verið að búa til nýtt matvælaráðuneyti sem m.a. er að fá verkefni frá umhverfisráðuneytinu, landgræðsluna. Mér finnst þetta vera sérstakt, að landgræðsla sé komin á sama stað og landbúnaðarráðuneytið. Ég hefði haldið að þetta ætti að vera á sitt hvorum staðnum og finnst eins og að landgræðsla sé umhverfismál og ætti þar af leiðandi heima í umhverfisráðuneytinu. Hvað finnst fyrrverandi umhverfisráðherra um að það sé verið að gera þessar breytingar?