breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Eitt af því sem ég er mjög hugsi yfir eru þessar breytingar sem lagðar eru til með því að búa til umhverfis-, auðlinda og orkumálaráðuneyti, eða loftslagsráðuneyti, nú þarf maður að reyna að muna hvað þetta á að heita. Samt er búið að taka mörg meginverkefni umhverfisráðuneytisins út úr því og koma þeim annað. Eitt varðar skipulagsmál, byggingarmál og annað slíkt og síðan það sem hv. þingmaður nefnir um landgræðslu og skógrækt. Ég hygg að svarið við þessu sé einfaldlega að þetta endurspegli pólitískar áherslur þessarar ríkisstjórnar og auðvitað er þessari ríkisstjórn frjálst að hafa þær áherslur sem hún vill í þeim málum. Ég er ekki viss um að ég sé sammála þeim og ég sé ekki alveg hvaða markmiðum er verið að reyna að ná með þessum breytingum. Ég get ekki svarað því með öðrum hætti. En þarna eru breytingar sem ég myndi a.m.k. gjarnan vilja fá miklu betri útskýringar á og rökstuðning fyrir þeim annan en þann að það séu margar áskoranir á þessu málasviði.