breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegi forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir andsvarið. Þegar ég les greinargerðina með tillögunni til þingsályktunar les ég eftirfarandi, með leyfi forseta:
„Fyrirhuguð fjölgun ráðuneyta og breyting á heitum þeirra er lokaáfangi í umfangsmiklum breytingum á skipulagi Stjórnarráðs Íslands sem kynntar voru í tengslum við myndun nýrrar ríkisstjórnar í lok nóvember sl.“ — ég vek athygli á: sem kynntar voru í tengslum við myndun nýrrar ríkisstjórnar í lok nóvember — „með útgáfu forsetaúrskurðar um skiptingu stjórnarmálefna milli ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands“ — það er einn úrskurður — „og forsetaúrskurðar um skiptingu starfa ráðherra.“
Það eru tveir úrskurðir og ef ég heyrði rétt þá talar hæstv. forsætisráðherra um þrjá úrskurði. (Forsrh.: Já.) Já, það er bara talað um tvo hér í greinargerðinni. Þá vantar greinilega upplýsingar í greinargerðina.
Ég vil bara taka það fram að ég er algerlega sammála því að ríkisstjórn hvers tíma geti skipt en hún á þá að gera það á grundvelli skrifstofanna sem eru í ráðuneytinu. En að fara að flokka mál út úr skrifstofunum, það er miklu stærra mál. Ég veit að þetta er gallað kerfi eins og ég lýsti áðan og ég hef mínar skoðanir á því á grundvelli stjórnarskrárinnar. Ég tel að þetta sé ekki plagg sem ætti að leggja fram og ég vona bara að þingið hafni þessu, að við styðjum þetta ekki, bæði vegna þess að eitt nafnið er rangt og jú, það er búið að breyta nafninu en þá verður að breyta forsetaúrskurðinum fyrst, tel ég, og koma svo til Alþingis og óska eftir samþykkt og stuðningi við fjölda ráðuneyta og heiti ráðuneytanna.