152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[21:12]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir ræðu hans hérna áðan og líka hæstv. forsætisráðherra fyrir framsöguna. Það er ánægjulegt að hæstv. forsætisráðherra taki virkan þátt í umræðunum um þetta mál. Þetta er ekkert smámál, finnst mér, alveg í heilmikið og stórt og full ástæða til að gefa því góðan gaum, bæði hér í þingsal og svo auðvitað í störfum nefndar og að þingheimur verði svolítið virkur í þessu.

Mig langar að spyrja hv. þingmann út frá ræðu hans hér áðan af því að hann fór að nefna þetta með hrunið. Það fór auðvitað í gang heilmikil rannsóknarvinna eftir hrunið til að passa upp á og reyna að finna út úr því hvað það var sem klikkaði í aðdragandanum, hvað við gætum t.d. gert til að laga stjórnkerfið okkar, tækin okkar öll, til lengri tíma litið til að koma í veg fyrir að eitthvað svona gerðist aftur.

Ég hef tekið svolítið eftir því að þegar hæstv. ráðherrar ríkisstjórnarinnar tala um þetta mál þá vísa þeir stundum, og það er reyndar gert í greinargerðinni líka, í rannsóknarskýrsluna en það er svolítið valkvætt, sumt er tekið og öðru sleppt. Mig langar því að spyrja hv. þingmann, af því að hann vísaði í þetta með hrunið og rannsóknarskýrsluna og það allt saman, hvernig honum finnist það síðan, eftir vinnuna við rannsóknarskýrsluna og þær tillögur sem þar komu fram sem lutu m.a. að því að fækka og efla og stækka ráðuneyti, samrýmast þeirri niðurstöðu sem við sjáum hér fyrir framan okkur í greinargerðinni og svo auðvitað bara í skipan Stjórnarráðsins eins og hún er fyrirhuguð.