152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[21:14]
Horfa

Eyjólfur Ármannsson (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Ég er algerlega sammála því sem segir í skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis um að fækka ráðuneytunum og efla þau. Íslensk stjórnsýsla er mjög veik. En núna er farið að fjölga þeim aftur og það er gert í pólitískum tilgangi að skipting ráðherra milli flokkanna sé þrír, fjórir, fimm, þar sem Vinstri grænir, sem töpuðu rúmum 4% í kosningunum, missa ekki stól. Það er tilgangurinn. Ekki er verið að hugsa um eflingu Stjórnarráðsins á nokkurn hátt.

Varðandi hrunið þá vil ég líka benda á að það er mikil krafa um að gerðar séu breytingar á stjórnskipun landsins og líka á Stjórnarráði Íslands. Þessar breytingar sem núna eiga sér stað eru í engum takti við það. Þetta eru pólitískar breytingar á milli flokkanna til að koma að einum stól. Ég tel mikilvægt að við tökum það sem kemur fram í skýrslunni alvarlega og að þeim leiðbeiningum sem þar komu fram verði fylgt eftir. Það hefur bara tekið óheyrilega langan tíma.

Í dag vorum við að fjalla um skerðingarnar. Eitt helsta baráttumál Flokks fólksins er að skerðingar verði afnumdar. Þeim var komið á í kringum hrunið og þær eru enn þá í gildi. Það er ekki enn þá búið að afnema þær. Það virðist enn þá eiga við þetta sem átti sér stað fyrir 13 árum, þessi ósköp sem áttu sér stað í fyrstu viku októbermánaðar 2008.

Mig langar að nota þessa síðustu hálfa mínútu sem ég hef hérna til að segja að þetta plagg, tillaga til þingsályktunar, er borið hér upp eftir klukkan átta að kvöldi, ég segi nú ekki í skjóli nætur en það er bara algerlega óforsvaranlegt að við séum að eyða tíma seint að kvöldi, milli átta og tólf, til að fjalla um þetta mikilvæga mál og að þingheimur fái ekki meiri tíma til að fjalla um það. Það er algerlega óásættanlegt.