breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanninum fyrir. Ég hjó eftir því í fyrri ræðu hans að hann nefndi hvernig verkefnum væri skipt milli ráðuneyta eða hvernig málaflokkum væri skipt innan Stjórnarráðsins. Mér finnst þetta svolítið áhugaverð umræða vegna þess að menn gefa sér oft í umræðunni, ég er ekki að segja að hv. þingmaður geri það, en það er stundum gefið út að það sé algjört frumskilyrði að málaflokkar eins ráðherra tengist með alveg óvefengjanlegum hætti. Svo erum við með menningar- og viðskiptaráðuneyti, sem mér finnst sjálfum ekkert athugavert við í prinsippinu. En það var einhver gárunginn sem nefndi það að loksins væri ljóðið komið inn í viðskiptaráðuneytið, gott ef það var ekki Bragi Valdimar. Þannig að ég vildi spyrja hv. þingmann: Hvað mælir gegn því að einn og sami ráðherrann geti verið með tvo ólíka málaflokka undir sama ráðuneyti?