152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[21:23]
Horfa

Helga Vala Helgadóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Hv. þingmaður er býsna fastur í forminu og vill að nákvæmni sé gætt við svona vinnu, hef ég heyrt. Ég hef tekið eftir því að hæstv. forsætisráðherra hefur talað um að verið væri að fjölga ráðuneytum úr 10 í 12, en á síðasta kjörtímabili voru ráðuneytin 11 af því að þeim var fjölgað þegar velferðarráðuneytinu var skipt upp í tvö ráðuneyti, félagsmálaráðuneyti og heilbrigðisráðuneyti. Ég velti fyrir mér hvaða máli þetta skiptir í þessu tilliti.

Þá langar mig líka að spyrja hv. þingmann út í það sem kemur hérna fram, t.d. er varðar fjármála- og efnahagsráðuneytið, að það sé að mestu leyti óbreytt í skipan ráðuneyta í Stjórnarráði og ekki tilgreint neitt frekar, en seinna í þingsályktunartillögunni er talað um að t.d. ríkisábyrgðarmálin séu að færast yfir í nýtt ráðuneyti, sem heitir nú menningar- og viðskiptaráðuneyti. Ég held að ríkisábyrgðarmálin hafi verið í fjármálaráðuneytinu eftir því sem leitarvélin Google sýnir mér.