152. löggjafarþing — 11. fundur,  15. des. 2021.

breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.

167. mál
[21:26]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Frú forseti. Ég ítreka þakkir mínar til hæstv. forsætisráðherra fyrir að kynna þetta mál fyrir okkur, leggja það hérna fram. Okkur gefst auðvitað tækifæri til þess að ræða það núna í framhaldinu.

Ég vil nefna það sérstaklega að ég er mjög samþykkur því að Stjórnarráðið sé dínamískt, að valdhafar hverju sinni geti og hafi mikið frelsi til að færa verkefni á milli eftir því sem áherslur þeirra leiða þá til. Það er auðvitað alveg eðlilegt að það sé gert. Ég vil hins vegar líka vera mjög skýr á því að ekki er sama hvernig það er gert. Þá er ég ekkert endilega að tala um það út frá því hvaða málaflokkar hanga saman heldur bara verklagið við ákvarðanatökuna. Ég nefndi hérna áðan að mikið sé vísað í rannsóknarskýrslu Alþingis en skautað fram hjá því að ein niðurstaðan þar er auðvitað sú að fækka eigi ráðuneytum, það eigi frekar að vera stærri einingar og annað í þeim dúr. Ég sá nú ekki betur í fréttunum um daginn en að fyrrverandi hæstv. forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir, hefði talað um að þessar tillögur væru í raun og veru bara langt nef, verið væri að gefa rannsóknarskýrslunni langt nef með þessari útfærslu. En við skulum kannski láta liggja á milli hluta þessa valkvæðni hæstv. ríkisstjórnar þegar kemur að því hvað eigi að taka úr rannsóknarskýrslunni og hvað ekki.

Ég verð að klóra mér í kollinum yfir atburðarásinni. Þetta er kynnt þannig að verið sé að búa til betri stoðir undir það að berjast fyrir bættum heimi. Auðvitað er talað sérstaklega um að berjast gegn loftslagsvánni, talað er um fjórðu iðnbyltinguna, að nýta og virkja þau tækifæri og það allt saman. Þetta eru verkefni sem eru búin að liggja fyrir lengi en ég fæ ekki séð annað en að atburðarásin sé sú að þetta sé bara ákveðið í stjórnarmyndunarviðræðum. Þó að hér og þar í gegnum tíðina og mögulega í kosningabaráttunni, og jafnvel að einhverjir flokkar hafi haft það á stefnuskránni, hafi verið rætt hvernig við eigum að haga stjórnskipan Stjórnarráðsins fæ ég ekki betur séð en að þetta hafi bara verið rætt á þessum þriggja manna fundi þar sem var verið að mynda ríkisstjórn. Það hafi ekki verið haft neitt samráð eða a.m.k. eitthvað talað inn í ráðuneytin, bara upp á það hvort þessi tiltekna skipting myndi skila þeim markmiðum sem er verið að reyna að ná fram. Hverjir eru kostirnir við það? Hverjir eru gallarnir við það? Hver væri kostnaðurinn við það? Við höfum ekki fengið að sjá neitt um slíka vinnu. Þetta finnst mér eiginlega svolítið miður. Það vantar ekkert upp á það í greinargerðinni að þar er talað mjög fallega um hverju þetta á að skila. Það eru meira að segja notuð svolítið skemmtileg orð í því öllu, ætla ég að leyfa mér að segja. Stefnulipurð er eitt orð sem mér fannst mjög gaman að sjá, að þessu fylgi aukin stefnulipurð. Mig langar að sjá hvað er á bak við það. Mig langar að sjá hvernig þetta var ákveðið, hvers konar þarfagreining á þessu fór fram.

Hæstv. forsætisráðherra nefndi það hér að regluverkið sé alveg skýrt, að auðvitað sé það hæstv. forsætisráðherra að halda utan um þetta og ákveða hvernig þetta eigi að vera, þá auðvitað með öðrum sem mynda ríkisstjórnina. En það er ekkert sem bannar að farið sé ofan í ráðuneytin, ofan í þessi síló sem alltaf er verið að tala um og stundum er talað um að þurfi að brjóta upp, og leitað eftir sjónarmiðum og skoðunum á því hvort heppilegt sé að gera þetta með þessum hætti í baráttu okkar gegn loftslagsvánni og hvort þetta sé heppilegasta leiðin til að virkja tækifæri fjórðu iðnbyltingarinnar o.s.frv. Mér finnst það vanta.

Ég nefndi það í ræðu í gær að í hvert einasta skipti sem ríkið hreyfir sig, kaupir eitthvað eða fer í einhvers konar stefnumótun eða eitthvað þá er mikil vinna á bak við það. Það er bara þannig. Ef lagður er vegspotti eða við byggjum hús eða hafnarkanta eða hvað það er þá fara fram alls konar greiningar og þá fara sérfræðingar yfir hvernig er best að haga málum og annað. Þegar við ætlum síðan að stokka upp allt Stjórnarráðið í ákveðnum tilgangi og með einhverri framtíðarsýn fer þessi greining ekkert fram. Þá virðist það vera, af því að við höfum ekki fengið að sjá neitt annað, að hugmyndir þriggja einstaklinga, eins ágætir og þeir eru, stjórnarherrarnir, séu settar á blað og svo er það framkvæmt. Við sjáum að efstu lögin í ráðuneytunum komu af fjöllum þegar þetta var kynnt og ráðherrarnir sjálfir sem tóku við nýjum ráðuneytum vissu ekki neitt og voru bara að fá þetta beint í fangið þegar ríkisstjórnin var kynnt. Eins hrifinn og ég er af því að Stjórnarráðið sé dínamískt og lifandi þá finnst mér þetta ekki traustvekjandi og ég væri alveg til í að fá frekari útlistanir á þessu ef þær eru til, svo að ég nefni það nú bara í þessari ræðu. Hverjir voru t.d. hafðir með í ráðum þegar þetta var enn þá til tals á stjórnarmyndunartímabilinu? Voru það einhverjir aðrir en aðstoðarmenn ráðherranna? Var talað við ráðuneytisstjórana, sérfræðinga eða eitthvað slíkt? Það myndi ég mjög gjarnan vilja sjá.

Síðan gengur svona vinna auðvitað út á það að reyna ekki bara að tína til kosti við að gera eitthvað heldur líka að reyna að sjá hindranirnar. Eru einhverjar hindranir eða ljón á veginum? Hvernig bregðumst við við því? Slík vinna myndi örugglega spara ófáar krónurnar og aurana ef slík ljón verða síðan á veginum, af því að það vitum við ekki enn þá.

Mér finnst ekki traustvekjandi að hæstv. fjármálaráðherra komi hér í ræðustól og hafi bara ekki hugmynd um það hvað þetta kosti. Þó að þetta sé að einhverju leyti útskýrt í greinargerðinni er margt mjög á huldu um það hver kostnaðurinn við þetta verður og úr því að það liggur ekki fyrir með skýrari hætti hlýtur að sama skapi að vera hægt að efast um að það sé gefið að ávinningurinn af þessu verði sá sem lagt er af stað með.

Þetta eru kannski þau helstu atriði sem ég myndi vilja nefna í þessari ræðu. Ég vil þó að sjálfsögðu koma nánar inn á fleiri atriði á eftir og svo auðvitað í vinnu nefndarinnar þegar málið fer þangað inn. Ég vonast til að hæstv. forsætisráðherra, af því að ég sé að hún er að hlusta á okkur og hefur tekið virkan þátt í umræðunni, komi með eitthvað af þeim svörum sem ég er að óska hér eftir og, eftir atvikum þá, að einhverjir stjórnarþingmenn taki þátt í umræðunni líka. Það væri auðvitað bragur að því. Ég ætla ekki að hafa þetta lengra hér í minni fyrri ræðu.