breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir svarið og spurninguna. Jú, auðvitað er það pólitísk ákvörðun hvernig ráðuneytin eiga að líta út og auðvitað er á endanum pólitísk ábyrgð að baki því sem menn þurfa þá að svara fyrir og það allt saman. En það er ekkert að því að vanda sig. Það er ekkert að því í miðju stjórnarmyndunarferli að þegar menn eru búnir að ákveða einhverja tiltekna uppskiptingu verkefna á milli ráðuneyta og annað, þá fari þeir kannski bara pínulítið ofan í ráðuneytin og velti vöngum yfir því: Hvað gerist ef við gerum þetta svona? Hverjir eru kostirnir? Hverjir eru gallarnir? Það er alveg hægt að gera það án þess að trúnaður um efni stjórnarsáttmála eða gang stjórnarmyndunarviðræðna að öðru leyti fari forgörðum. Ég sé ekki að það sé neitt sem mæli gegn því að gera þetta með þeim hætti. Ég ímynda mér, og ætla bara að leyfa mér að segja það, að ef þetta hefði ekki snúist svona mikið um að bæta við ráðherra til Framsóknarflokksins (Forseti hringir.) þá hefði þessi uppstokkun og uppskipting á Stjórnarráðinu farið þannig fram að ríkisstjórnin hefði kynnt sig (Forseti hringir.) og síðan nokkrum mánuðum síðar hefðu breytingarnar verið kynntar eftir vandlega meðferð og yfirlegu.