breytt skipan ráðuneyta í Stjórnarráði Íslands.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. forsætisráðherra fyrir andsvarið. Ég skil samt eiginlega ekki alveg hvert verið er að fara. Ég er ekkert að gagnrýna fyrirkomulagið. Ég er að gagnrýna hvernig þetta er gert. Ég er ekkert að gagnrýna það að forsætisráðherra og ríkisstjórnin taki þá ákvörðun að þau vilji setja loftslagsmálin í þann farveg sem þau gera og fanga tækifæri fjórðu iðnbyltingarinnar og geri það með þessari uppskiptingu ráðuneyta og annað. Ég held bara að í þessari vinnu eins og allri vinnu þar sem farið er með almannafé, þar sem svona stór mál og mikilvæg fyrir landslýð eru undir, sé í lagi að skoða, greina, vega og meta og reikna og leggja hlutina þannig á borð fyrir fólk, frekar en að segja: Ja, við ætlum að gera þetta svona og þetta mun skila alveg rosalega miklum árangri, en þið fáið ekki að vita hvers vegna. Það er bara þetta sem ég er að tala um. Ég er ekki að gagnrýna það efnislega að fyrirkomulag okkar sé með þessum hætti. Ég er bara að benda á að fyrirkomulagið er ekki þannig að ykkur sé bannað að gera þetta með einhvers konar greiningum og vandaðri málsmeðferð.